Plast úr fatnaði ógnar lífríki
Fyrst birt: 28.01.2012 05:31 GMT, Síðast uppfært: 28.01.2012 14:02 GMT

Örplast, eins millimetra plastagnir eða minni, streymir í haf út á degi hverjum og berst þar í fæðukeðjuna. Sérfræðingar Kalíforníuháskóla segja um 1.900 örfína þræði losna úr hverri flík úr gerviefni; pólýester, akríl eða næloni, í hvert sinn sem hún sé þvegin.
Rannsóknir sýni að örplastið berist með fæðu inn í meltingarfæri dýra, þaðan í blóðrásina og loks inn í frumur. Þetta séu dýr sem önnur dýr éti, og menn leggi sér til munns. Sérfræðingarnir segja um 80 prósent af öllu plastefni í umhverfinu séu þessir örfínu þræðir eða trefjar. Þetta efni sé hvarvetna í sjónum, en mest af því úti fyrir stórborgum og öðrum þéttbýlissvæðum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







