Persie á förum frá Arsenal
Fyrst birt: 04.07.2012 16:46, Síðast uppfært: 04.07.2012 16:46

Robin van Persie, framherji Arsenal og hollenska landsliðsins, tilkynnti í dag að hann hyggðist ekki framlengja samning sinn við félagið sem rennur út næsta sumar.
Van Persie varð markakóngur ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð en segist vera ósammála forráðamönnum liðsins um hvernig best sé að bæta árangur þess.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














