Peningalykt við loðnubræðslur

Það er viðbúið að peningalykt leggi frá verksmiðju Síldarvinnslunnar í Neskaupstað eins og öðrum loðnubræðslum landsins. Íslensk skip fá að veiða rúma hálfa milljón tonna af þessari skepnu; meira en tvöfalt það sem veitt var á síðasta fiskveiðiári.
„Aukningi fer meira og minna í mjöl og lýsi en þetta er gríðarleg lyftistöng fyrir þessa staði sem byggja á uppsjávarveiðum og vinnslu. Fólk mun hafa mikið að gera næsta einn og hálfa mánuðinn við að koma þessu í verðmæti.“ segir Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar.
Inni í vinnslu Síldarvinnslunnar er loðnan fryst á Austur-Evrópu og Rússlands-markað. Og nú til dags þarf ekki margar handur til að manna verksmiðjuna. Og það þarf ekki margar hendur við frystinguna. „Aukinn kvóti þýðir að við höfum meiri vinnu og meiri tekjur þannig að það er bara bjart framundan hjá okkur. Við erum ellefu á vaktinni og þetta er að stórum hluta orðinn sjálvirkur vélbúnaður sem þarf að fylgjst með og grípa inn í annað slagið,“ segir Guðjón Helgi Þorsteinsson verkstjóri.
Aukinn kvóti þýðir líka auknar tekjur til hafnarinnar segir Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri í Fjarðabyggð. „Við höfum reiknar það út gróflega að þetta sé á bilinu 60 til 80 milljónir sem þetta þýðir í auknar tekjur fyrir sveitarfélagið.“
Allt veltur þetta að því að það takist að veiða kvótann áður en loðnan hrygnir og drepst en kvótinn var gefinn út óvenju seint. „Það hafa náttúrleg ekki allir verið á fullum snúningi í janúar en ef veðurguðirnir og ytri aðstæður eru okkur hagstæð og veiðar ganga vel þá mun kvótinn nást,“ segir Gunnþór framkvæmdastjóri.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






