Pálmi Rafn skoraði fyrir Lilleström

Pálmi Rafn Pálmason skoraði fyrir Lilleström í dag - Mynd: heimasíða Lilleström/www.lsk.no


  • Prenta
  • Senda frétt

Pálmi Rafn Pálmason skoraði eitt af mörkum Lilleström sem vann Fredrikstad 4-3 í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Pálmi Rafn lék allan leikinn fyrir Lilleström líkt og Björn Bergmann Sigurðarson en markvörðurinn Stefán Logi Magnússon var ekki í leikmannahópi liðsins.

Lilleström fékk þar með dýrmæt stig í botnbráttunni en liðið er nú í þriðja neðsta sæti með 14 stig.

Staðan í deildinni

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku