Paisley á gjörgæslu
Fyrst birt: 07.02.2012 01:18, Síðast uppfært: 07.02.2012 07:13

Ian Paisley,fyrrverandi fyrsti ráðherra heimastjórnar Norður Írlands og einn helsti leiðtogi mótmælenda þar í áratugi, er í gjörgæslu á sjúkrahúsi vegna hjartakvilla.
Paisey fékk ígræddan gangráð fyrir ári eftir hjartakast á fundi í lávarðadeild breska þingsins. Paisley, sem er hálfníræður, var aðlaður í hitteðfyrra og ber nú titilinn Bannside lávarður.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
ErlentTilkynna um bilaða upptöku






