Óttast hrun við brotthvarf Grikkja

Úrganga Grikkja úr Efnahags-og myntbandalagi Evrópu myndi kosta Þjóðverja 62 milljarða evra, um 9.600 milljarða króna. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, leggur megináherslu á að finna lausn á skuldakreppu Grikkja strax í haust, þannig að þeir leggi ekki evruna fyrir róða.
Der Spiegel segir hana óttast að brotthvarf Grikkja úr gjaldmiðilssamstarfinu valdi keðjuverkun, hugsanlega nýrri fjármálakreppu, og jafnvel efnahagshruni, eins og gjaldþrot fjárfestingabankans Lehmans Brothers vestan hafs fyrir fjórum árum.
Vikuritið segir kanslarann andvígan því að veita stjórnvöldum í Aþenu þriðja björgunarlánið, enda öldungis óvíst að sambandsþingið í Berlín myndi fallast á það, en til greina komi að breyta skilmálum láns númer tvö, til að mynda hækka næstu greiðslur.
Endurskoðendur Evrópusambandsins, Seðlabanka Evrópu og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins eru í Grikklandi þar sem þeir fara ofan í saumana á fjárreiðum ríkisins. Telji þeir Grikki hafa hlítt skilmálum þessara þriggja lánardrottna sinna er hugsanlegt að slakað verði til við þá, þeir fái jafnvel lengri frest til að skera niður ríkisútgjöld um 11,5 milljarða evra en til ársloka 2014.
Um 12 þúsund manns mótmæltu niðurskurði og kjaraskerðingu í Þessalóníku í dag. Almenn lífskjör hafa rýrnað um 35 prósent á fimm árum í Grikklandi, fjórðungur landsmanna er atvinnulaus.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













