Ótrúlega frammistaða Lin með Knicks
Fyrst birt: 11.02.2012 12:49, Síðast uppfært: 11.02.2012 12:58

Jeremy Lin hefur átt frábæra innkomu í lið New Your Knicks
Tólf leikir voru á dagskrá í bandarísku NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt.
Jeremy Lin skoraði 38 stig fyrir New York Knicks í sjö stiga sigri liðsins á Los Angeles Lakers. Lin er nýjasta undur NBA-deildarinnar en hann fékk óvænt tækifæri með liði Knicks í síðustu viku. Það nýtti hann svo sannarlega en hann skoraði 25 stig í sigri Knicks á New Jersey Nets og 28 stig gegn Utah Jazz. Kobe Bryant skoraði 34 stig fyrir Lakers í leiknum en það dugði ekki til að koma í veg fyrir fjórða sigur Knicks í röð.
Úrslit allra leikja í nótt:
- Orlando Magic 87 – 89 Atlanta Hawks
- Philadelphia 76ers 77 - 78 Los Angeles Clippers
- Washington Wizards 89 – 106 Miami Heat
- Toronto Raptors 86 – 74 Boston Celtics
- Charlotte Bobcats 64 – 95 Chicago Bulls
- Cleveland Cavaliers 112 - 113 Milwaukee Bucks
- Detroit Pistons 109 - 92 New Jersey Nets
- New Orleans Hornets 86 – 94 Portland Trail Blazers
- Minnesota Timberwolves 97 – 104 Dallas Mavericks
- New York Knicks 92 - 85 Los Angeles Lakers
- Memphis Grizzlies 98 - 92 Indiana Pacers
- Utah Jazz 87 – 101 Oklahoma City Thunder
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






