Örlög hælisleitanda óþekkt

Flokkar: Innlent
Knorr rannsóknarskip. Mynd af vefsíðu Woods Hole Oceanographic Institute.


  • Prenta
  • Senda frétt

Ekki er ljóst hvað verður um hælisleitanda sem laumaðist um borð í rannsóknarskipið Knorr. Skipið kemur til hafnar í Massachusetts á morgun.

Maðurinn er tvítugur Alsíringur sem kom til Íslands í desember í fyrra og sótti um hæli. Hann hafði áður sótt um hæli annars staðar á Norðurlöndunum. Þess vegna ákvað Útlendingastofnun að senda hann aftur þangað. Honum var birt ákvörðun þess efnis í byrjun maí. Hann kærði niðurstöðuna og er kæran á borði Innanríkisráðuneytisins.

Manninum er eins og öðrum frjálst að sækja um hæli í Bandaríkjunum, en það er undir yfirvöldum útlendingamála þar í landi komið hvort þau taka umsókn hans til efnislegrar meðferðar. Í gildi er samþykkt um Alþjóðasiglingamálastofnunina þar sem fjallað er um ferðir laumufarþega. Líklegt þykir að maðurinn verði sendur aftur til Íslands á grundvelli hennar. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku