Orkugarður opnaður á Sólheimum
Fyrst birt: 07.07.2012 14:55, Síðast uppfært: 07.07.2012 14:55

Á Sólheimum er meðal annars hægt að kynna sér vindmyllur.
Opnaður hefur verið orkugarður á Sólheimum í Grímsnesi. Hugmyndin með orkugarðinum er að skapa fræðslu- og skemmtigarð um endurnýjanlega orkugjafa.
Í orkugarðinum er sýning um endurnýjanlega orkugjafa og fræðsla um orkumál á Íslandi og Sólheimum. Utandyra er hægt að kynna sér sólarsellur, vindmyllu, hitaveitu sem sýnir nýtingu jarðvarma, virkjun sem framleiðir rafmagn og svo er hægt að kynna sér líforku úr skógi þar sem jarðgerðarvél forvinnur lífrænar leifar til áburðar og framleiðslu eldsneytis.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














