Orð dagsins
Fyrst birt: 06.02.2012 11:31, Síðast uppfært: 06.02.2012 11:31

Jón Oddgeir Guðmundsson rekur Orð dagsins, símaþjónustu sem hefur verið við líði í hartnær yfir 40 ár. Hann les inn á símsvara á hverjum degi, velur kafla úr Biblíunni og tvinnar við stutta hugleiðingu. Þeir sem hringja í 4621840 geta svo hlustað á.
Nóg er af verkefnum í Guðs ríki segir Jón Oddgeir sem lætur sitt ekki eftir liggja. Auk þess að halda úti Orðum dagsins, er hann kirkjuvörður, situr í tveimur sóknarnefndum, sinnir fjölbreyttu kristilegu félagsstarfi og rekur Litla Húsið, verslun með kristilegan varning - en þar fæst meðal annars hin kunna bílabæn. Landinn kíkti í heimsókn til Jóns Oddgeirs.
Vertu vinur Landans á Facebook
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






