Óljóst hvenær Guðrún snýr aftur



  • Prenta
  • Senda frétt

Óljóst er hvenær Guðrún Pálsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri Kópavogs, tekur aftur til starfa fyrir bæinn en hún sendi bæjaryfirvöldum nýlega bréf vegna breytinga sem hún taldi að verið væri að gera á starfslokasamningi sínum.

Bréfið dró hún svo til baka en hefur ekki snúið aftur til vinnu eins og til stóð.

Þann 1. september átti Guðrún Pálsdóttir fyrrum bæjarstjóri í Kópavogi að hefja störf sem sviðsstjóri nýs sviðs hjá bænum en ekki hefur orðið af því og ekki ljóst hver ástæða þess er. Bréfið sem Guðrún sendi núverandi bæjarstjóra, fjallar, samkvæmt heimildum fréttastofu, að hluta til um óánægju Guðrúnar með breytingar á starfslokasamningi.

Í samtali við fréttastofu staðfesti Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi, að bréfið hefði borist en að það hefði verið dregið til baka skömmu síðar. Því næst óskaði Guðrún eftir fundi með bæjarstjóra og formanni bæjarráðs og segir Ármann sjálfsagt að verða við þeirri beiðni. Fréttastofa hefur ítrekað reynt að ná í Guðrúnu um helgina en án árangurs.

Guðríður Arnardóttir, fulltrúi Samfylkingar í bæjarstjórn, segir að minnihlutanum sé ekki ljóst hvað hafi farið á milli bæjarstjóra og formanns bæjarráðs og Guðrúnar. „Það eina sem ég veit er að það hafa átt sér stað einhverjar viðræður milli bæjarstjóra, formann bæjarráðs og hennar um breytingar á þessum starfslokasamningi sem var gerður í febrúar en þau hafa svo sem ekkert upplýst okkur nánar um þeirra fyrirætlanir hvað það varðar.“

Af starfslokasamningnum má skilja það svo að biðlaunaréttur fylgi nýja sviðsstjórastarfinu. Samkvæmt samningi er Guðrún á biðlaunum bæjarstjóra til 1. apríl 2013. Má ætla að hún eigi kost á áframhaldandi biðlaunum ef hún kemur ekki til þess starfs sem hún átti að hefja þann 1. september? „Það er það sem við gagnrýndum á sínum tíma, þegar þessi starfslokasamningur var gerður, að hann er ekki nógu skýr. Það stendur í starfslokasamningi að hún fái 12 mánaða biðlaun, það er að segja sem bæjarstjóri, og taki við stöðu sviðsstjóra þann fyrsta september. Það kemur ekkert fram í samningnum hvað gerist ef hún tekur ekki við sviðsstjórastarfinu. Mun hún þá halda biðlaunum sem bæjarstjóri í 12 mánuði og aðra tólf mánuði sem sviðsstjóri? Þannig að það er væntanlega eitthvað sem þau verða að semja um við hana. En eins og ég segi þá veit ég ekki hvort hún muni koma til baka annað hvort núna eða ekki. Það er bara bæjarstjórinn sem getur svarað því.“

Guðrún gegndi áður stöðu sviðsstjóra mennta- og tómstundasviðs en það var sameinað fræðslusviði í janúar í fyrra, meðal annars í sparnaðarskyni. Nú á að hætta við að sameininguna og var markmiðið að Guðrún tæki aftur við sinni fyrri stöðu. „Ef af verður þá er verið að búa til þessa stöðu fyrir fyrrverandi bæjarstjóra,“ segir Guðríður.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku