Ólafur eykur forskotið
Fyrst birt: 15.06.2012 20:19, Síðast uppfært: 16.06.2012 02:21

Ólafur Ragnar Grímsson hefur tekið talsverða forystu í baráttunni um Bessastaði og hefur nú tvöfalt meira fylgi en Þóra Arnórsdóttir. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins.
Af þeim sem tóku afstöðu mældist Ólafur Ragnar með 58% fylgi, Þóra með 28%, Ari Trausti Guðmundsson mælist með 8%, Herdís Þorgeirsdóttir 4% og Hannes Bjarnason og Andrea Jóhanna Ólafsdóttir mældust með 1%. Hlutfall þeirra sem sem ekki tók afstöðu var 28%.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







