Ólafur Darri leikur á móti Ben Stiller

Ólafur Darri Ólafsson hefur verið ráðinn í stórt hlutverk í kvikmyndinni The Secret Life of Walter Mitty, sem Ben Stiller leikstýrir og framleiðir, samkvæmt heimildum fréttastofu. Stór hluti myndarinnar verður tekinn hér á landi. Annar íslenskur leikari gæti verið ráðinn í bitastætt hlutverk.
Ólafur Darri er einn fremsti leikari þjóðarinnar en hann talar reiprennandi ensku og lék meðal annars stórt hlutverk í enskri uppfærslu Vesturports á Hróa Hetti.. Þá lék Ólafur lítið hlutverk í kvikmyndinni Contraband, sem var endurgerð á íslensku spennumyndinni Reykjavík-Rotterdam.
Eins og fréttastofa greindi frá fyrir skemmstu hitti Stiller nokkra íslenska leikara og ræddi við þá um væntanleg hlutverk í myndinni. Stiller virðist hafa líkað vel við það sem hann sá hjá Ólafi Darra sem verður því í eldlínunni þegar tökur hefjast í september. Hluti af tökuliði Stiller er þegar komið til landsins og byrjað að undirbúa tökur.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














