Hetjur eða ribbaldar ?

Miðlun sögunnar og mótun sögulegrar þekkingar er til umræðu í þættinum Okkar á milli á Rás 1 í dag, fimmtudag. Gestur er Helgi Þorláksson prófessor í sagnfræði við HÍ. Sýnum við gestum okkar yfirborðslega mynd af sögunni, hve langt þarf að líða frá atburði þar til þokkaleg yfirsýn fæst ?

Helgi Þorláksson stundaði nám í sagnfræði og íslensku við Háskóla Íslands, og stundaði framhaldsnám í Dyflini og Björgvin.  Sérsvið hans er Íslandssaga fyrir 1700 en hann kennir einnig og hefur umsjón með námskeiði við sagnfræðideild HÍ sem nefnist Hugtök og miðlun sögu.  Hvernig mótast vitund okkar um söguna, getur mannfólkið dregið lærdóma af sögunni, hvert er viðhorf Norðmanna og Íra til tengsla við Íslendinga ?  Þetta er meðal þess sem ber á góma í samtalinu við Helga.

Umsjón:
Hanna G. Sigurðardóttir
hannags@ruv.is

Okkar á milli   fimmtudag 2. febrúar 2012 kl. 9.05

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku