Bólusetningar og heilsuvernd

Bólusetningar eru afar mikilvægar í heilsuvernd segir Þórólfur Guðnason, yfirlæknir sóttvarna hjá Landlæknisembættinu. Þetta kemur fram í þættinum Okkar á milli á Rás 1 fimmtudaginn 15. desember. Rætt er um mislingafaraldur í Evrópu, viðbrögð við svínaflensunni, en líka tónlistaráhuga Þórólfs.

Þórólfur telur sig Vestmannaeying þótt hann eigi ættir að rekja upp á land.  Hann segir af bílskúrsböndum og samheldni Eyjamanna, auk þess að ræða starf sitt, einkum um mikilvægi bólusetninga.  Komið er inn á andúð ýmissa við bólusetningum og fullyrðingar um að þær geti valdið einhverfu.  Þórólfur segir að engin slík tengsl hafi komið fram í rannsóknum.  Sömuleiðis að viðbrögð íslenskra yfirvalda við svínaflensunni hafi ekki verið yfirdrifin, öðru nær. All margir Íslendingar hafi veikst alvarlega, og víðtæk bólusetning hafi komið í veg fyrir að verr færi. 

 

Umsjón:
Hanna G. Sigurðardóttir

Vefsvæði Landlæknisembættisins 

Okkar á milli fimmtudag 15. desember 2011 kl. 9.05

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka