Bloggar um gullinrót og góða heilsu

Vilhjálmur Ari Arason heimilislæknir er gestur þáttarins Okkar á milli á Rás 1 á morgun, fimmtudag. Vilhjálmur Ari hefur bloggað af kappi frá því eftir Hrun, miðlað upplýsingum um ýmislegt sem lýtur að heilbrigði en líka tjáð sig um umdeild mál sem tengjast starfsemi heilbrigðisgeirans.
Þar má nefna óhóflega sýklalyfjanotkun á Íslandi, pip-brjóstapúðana, hátæknisjúkrahúsið og fyrirsjáanlegan læknaskort hjá heilsugæslunni. Þetta er meðal þess sem rætt er í þættinum en auk þess segir Vilhjálmur Ari af uppvexti sínum og námi. Okkar á milli fimmtudag 23. febrúar 2012 kl. 9.05 Umsjón: ps. Vilhjálmur Ari skrifar um gullinrót í bloggi frá 17. febrúar 2012
Hanna G. Sigurðardóttir
hannags@ruv.is
Blogg Vilhjálms Ara
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






