Óhófleg pressa um að vera kynvera

Flokkar: Menning, Rás 1
Stefán Máni, Ólafur Páll (f. miðju) og Thomas Smidt gagnrýndu klámvæðinguna á Íslandi í þættinum


  • Prenta
  • Senda frétt

Ólafur Páll Jónsson, heimspekingur og dósent við HÍ, tók sig til eitt sinn og safnaði dæmum um klám og kvenfyrirlitningu í háskólasamfélaginu. Hann hélt síðan fyrirlestur í háskólanum sem hann fór yfir þessi dæmi og hvers vegna hann telji tilvísanir í klám ekki æskilegar í samfélaginu.

Ólafur segir ýmsar ástæður fyrir því að klám ætti ekki að vera samþykkt í íslensku samfélagi - en það sé óhófleg pressa á konur um að vera kynverur öllum stundum. Það sé hins vegar ekki heppilegt að það hlutverk sé ríkjandi í lífi fólks, hvorki karla né kvenna.

Afleiðing klámvæðingarinnar hafi m.a. þau áhrif að konur þurfi oft að líta á sjálfar sig sem kynverur fyrst, en ekki eitthvað annað, t.d. sem vitsmunaverur.

Ólafur var einn viðmælenda í útvarpsþættinum Karlar sem hata klám, þar sem þrír karlmenn gagnrýndu klámnotkun og klámvæðingu samfélagsins. Hér má hlusta á viðtalið við Ólaf í heild sinni.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku