Ofhlaðið fjöltengi bráðnaði
Fyrst birt: 20.02.2012 12:25, Síðast uppfært: 20.02.2012 12:25

Allt tiltækt slökkvilið var kallað að sendibílastöð við Klettagarða skömmu fyrir hádegi, en þar hafði verið tilkynnt um reyk. Fljótlega kom þó í ljós að um minniháttar bruna var að ræða og var því dregið úr útkallinu.
Þegar slökkviliðsmenn komu á staðinn kom í ljós að starfsmenn sendibílastöðvarinnar höfðu tengt nokkur fjöltengi saman, og voru þau öll í fullri notkun. Endaði það með því að þau byrjuðu að bráðna. Slökkvilið reykræsti og lauk störfum stuttu eftir hádegið. Vill slökkvilið minna fólk á að ofhlaða ekki fjöltengi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku

Eldur í Klettagörðum




