Obama hyggst lækka fyrirtækjaskatt
Fyrst birt: 11.02.2012 04:46, Síðast uppfært: 11.02.2012 08:29

Fjárlagahalli Bandaríkjanna verður kominn niður í 2,8% árið 2018, samkvæmt drögum að fjárlagafrumvarpi ársins 2013 sem Barack Obama forseti leggur fyrir bandaríska þingið á mánudag. Þetta er haft eftir ónefndum heimildarmönnum í Hvíta húsinu.
Til samanburðar er spáð 8,5% fjárlagahalla í ár.
Jafnframt er fullyrt að Obama muni leggja fram tillögur um umbætur á fyrirtækjasköttum fyrir lok mánaðarins, en forsetinn og bæði fulltrúar demókrata og repúblikana í þinginu hafa rætt möguleikann á því að lækka fyrirtækjaskatt um allt að 35% á þessu ári eða því næsta.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
ErlentTilkynna um bilaða upptöku






