Nýtt stjórnmálaafl kynnt á morgun

Lilja Mósesdóttir alþingismaður er ein þeirra sem standa að nýja flokknum.

Nýtt stjórnmálaafl, sem bjóða mun fram í öllum kjördæmum landsins, hefur formlega verið stofnað.

Í fréttatilkynningu frá þingmanninum Lilju Mósesdóttur segir að stjórnmálaaflið verði formlega kynnt á morgun. Það sé hvorki til hægri né vinstri heldur boði það nýja hugsun í stjórnmálum. Hugsun sem gangi út á að skilgreina vandamál og lausnir út frá sérstöðu íslensks samfélags og almannahagsmunum. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Stjórnmál

Tilkynna um bilaða upptöku