Nýtt skip til Síldarvinnslunnar

Gamli Börkur sem nú hefur fengið nafnið Birtingur NK. Mynd: Síldarvinnslan
Nýtt loðnuskip bættist í flotann í morgun þegar nýtt skip Síldarvinnslunnar kom að landi í Neskaupstað. Framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar segist vonast til að skipið komist á veiðar annað kvöld.
Skipið var byggt í Noregi árið 2000 og ber í kringum 1850 tonn. Það hefur fengið nafnið Börkur NK 122 en skip Síldarvinnslunnar sem hefur borið það nafn fram að þessu fær nafnið Birtingur NK. Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar, segir að nú sé verið að ganga frá málum og skrá skipið. Hann vonast til að skipið komist til veiða á morgun.
Síldarvinnslan hefur tæplega 90 þúsund tonna loðnukvóta og verður nú með þrjú skip á loðnuveiðum. ,,Við erum að verða komnir með 30 þúsund tonn á land og þetta skip mun náttúrulega hjálpa okkur að ná okkar kvóta og landa honum til vinnslu " segir Gunnþór
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






