Nýtt loðnuskip í flotann

Myndina tók Halldróra Auður Jónsdóttir þegar skipið kom til Norðfjarðar í morgun.

Nýtt loðnuskip bættist í flotann í morgun þegar nýtt skip Síldarvinnslunnar kom að landi í Neskaupstað. Vonast er til að skipið komist á veiðar annað kvöld.

Skipið var byggt í Noregi árið 2000 og ber í kringum 1850 tonn. Það hefur fengið nafnið Börkur NK 122 en skip Síldarvinnslunnar sem hefur borið það nafn fram að þessu fær nafnið Birtingur NK.

Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar segir skipið búið til nóta- og tollveiða með tvo nótakassa og tvær tromlur „Þannig að það mun stunda uppsjávarveiðar og verða mjög öflugt í því.“

Síldarvinnslan hefur tæplega 90 þúsund tonna loðnukvóta og verður nú með þrjú skip á loðnuveiðum. „Við erum auðvitað að horfa til aukinnar verðmætasköpunar uppsjávarfiska og aukinnar manneldisvinnslu í gegnum frystihúsi. Við erum að fá hérna  mjög vel útbúið skip með öflugu kælikerfi sem mun styrkja mjög við þá vinnslu sem er í Neskaupsstað í dag,“ segir Gunnþór

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku