Nýr stígur í Almannagjá

Arkitektar Studíos Granda og verkfræðingar á verkfræðistofunni Efla þóttu eiga bestu tillögu um hönnun göngustígs í Almannagjá á Þingvöllum. Niðurstaða dómnefndar var kynnt í dag.

Vinningstillagan þykir vera einfald, skýr og vel framsett. Tekið er til þess að efnisval og frágangur taki mið af lausnum, sem þegar hafi verið nýttar uppi á Hakinu. Stígurinn liggi þétt við klappir og lagi sig að sprungunni sem opnaðist óvænt í fyrra. Í haust voru framkvæmdir undirbúnar og ofaníburði ur gjábotninum mokað í burtu. Ófært hefur verið um Almannagjá síðan.  Leggja á nýja stíginn áður en mesti ferðamannatíminn hefst. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku