Nýjar upplýsingar um morðið á Palme
Fyrst birt: 28.08.2012 17:20, Síðast uppfært: 28.08.2012 19:54

Kerstin Skarp, vararíkissaksóknari í Svíþjóð. Mynd:Nordic Photos/AFP
Embætti ríkissaksóknara í Svíþjóð fékk upplýsingar er varða morðið á Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, árið 1986, frá yfirvöldum í Bretlandi og Evu Rausing, eiginkonu sænska auðmannsins Hans Kristians Rausing, en hún lést fyrr á þessu ári.
Kerstin Skarp, vararíkissaksóknari greindi frá þessu í dag, en kvaðst ekki geta tjáð sig frekar um málið. Sænska blaðið Expressen sagði í síðustu viku að yfirvöld vildu ræða við Hans Kristian Rausing um upplýsingar um morðið á Palme sem hann hefði tjáð konu sinni, að hennar sögn. Expressen sagði að Eva Rausing hefði haft samband við lögreglu um málið fyrir tveimur árum, en lögreglan hefði ekki talið upplýsingar hennar trúverðugar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













