Nýfædd prinsessa heim af spítala

Marie og Joakim Danaprins með nýfædda dóttur. Mynd: Nordic Photos/AFP.
Marie prinsessa og Jóakim Danaprins, fóru í dag heim af Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn með nýfædda dóttur sína. Mannfjöldi fagnaði hjónumum við spítalann. Sömuleiðis ljósmyndarar sem vildu ólmir fá myndir af nýju dönsku prinsessunni. Hún er tíunda í erfðaröðinni í dönsku konungsfjölskyldunni.
Sú stutta er fyrsta dóttir Jóakims og Marie, fyrir eiga þau soninn Karl Jóakim. Jóakim á einnig tvö syni af fyrra hjónabandi. Marie var spurð um viðbrögð Karls Jóakims sem nú er tveggja og hálfs árs. Stóri bróðirinn er stoltur og glaður og vonar að hún vilji fara í bílaleik. Foreldrarnir voru að vonum ánægðir með litlu stúlkuna og hvað hún væri lystargóð. Móðirin ekki frá því að hún hefði stækkað á spítalanum frá því hún fæddist 24. janúar. Marie og Jóakim búa í Schackenborg kastala á Jótlandi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






