Ný deila risin um Falklandseyjar

Cristina Fernandez de Kirchner, forseti Argentínu, gagnrýndi bresk stjórnvöld harkalega. Mynd: Nordic Photos/AFP.

Bresk og argentínsk stjórnvöld eru enn á ný komin í hár saman út af Falklandseyjum, þremur áratugum eftir að ríkin háðu stríð um eyjarnar.

Cristina Fernandez de Kirchner, forseti Argentínu, gagnrýndi bresk stjórnvöld harkalega í kvöld. Hún ávarpaði þá fund stjórnmálamanna og argentínskra hermanna sem börðust í Falklandseyjastríðinu 1982. Hún sakaði Breta um að hervæða Falklandseyjar og sagðist ætla að bera upp formlega kvörtun hjá Sameinuðu þjóðunum.

Ástæðan fyrir óánægju Argentínustjórnar nú er sú að Bretar tilkynntu nýlega að þeir myndu senda eitt nýjasta herskip sitt, tundurspillinn Dauntless, á vakt í Suður-Atlantshafi, nærri Falklandseyjum. Þá hefur það gert nærveru Breta á eyjunum sýnilegri en ella að Vilhjálmur prins hefur verið sendur þangað til skyldustarfa á björgunarþyrlu breska flotans. Því hafa argentínsk stjórnvöld þegar mótmælt sem hreinni ögrun við sig.

Ríkin hafa lengi deilt um eyjaklasann og þær deilur minnkuðu ekki þegar Bretar hófu olíuleit við eyjarnar í hittifyrra. 3.140 búa á eyjunum, flestir af breskum ættum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku