Cruise truflar bændur

Krúsarinn


  • Prenta
  • Senda frétt

Það getur alls konar rask og umstang fylgt því ef frægasti kvikmyndaleikari í heimi flyst í hverfið manns.

DV segir frá því í dag að Öryggisverðir, sem vinna við það að gæta Tom Cruise, hafi haft afskipti af bændum sem voru að fara með fé í tún sem þeir eiga þarna fyrir ofan, stoppað þá þarna á Vaðlaheiðarveginum og rekið þá í burtu. Cruise býr í húsinu Hrafnabjörgum við Vaðlaheiðaveginn í hlíðinni móti Akureyrarbæ, hús sem Jóhannes í Bónus átti.

Síðdegisútvarpið sló á þráðinn norður og ræddi við Arndísi Ósk Arnarsdóttur sem býr í næsta húsi við kvikmyndaleikarann.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku