Norður Kórea

Raunveruleg ógn eða stormur í vatnsglasi

Norður Kóreumenn sprengdu sína fyrstu kjarnorkusprengju árið tvö þúsund og sex og síðan aðra árið tvö þúsund og níu. Þá viðurkenndu Bandaríkin að Norður Kórea væri orðið kjarnorkuríki, landið réði yfir kjarnorkuvopnum. Það er þó enn umdeilt hversu mikil ógn starfar af kjarnorkuvopnum Norður Kóreumanna, eitt er til dæmis að geta framleitt kjarnorkusprengjur og annað að búa yfir þeirri tækni sem þarf til að senda kjarnorkusprengjur milli meginlanda með langdrægum eldfluagum, eins Vera Knútsdóttir, sem nýlega lauk meistaranámi í alþjóðlegum öryggisfræðum bendir á, en rætt er við hana í Speglinum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Spegillinn

Tilkynna um bilaða upptöku