Níu létust í snjóflóði

Frá Montenegro. Kuldakast í Evrópu. Mynd: Nordic Photos/AFP.

Níu létust þegar snjóflóð skall á fjallaþorpi í Kosovo. Lítil stúlka bjargaðist úr húsarústum en enn er eins saknað. Fimmtán hús eyðilögðust í flóðinu, en flest voru tóm.

Stúlkan grófst tíu metra í fönn. Björgunarmenn náðu henni, nokkrum klukkutímum eftir að flóðið féll. Þeir höfðu þá heyrt til hennar og farsíma hringja. Talið er að meira en fimmhundruð manns hafi látist í frosthörkum í Evrópu síðasta hálfa mánuðinn. Tuttugu króknuðu í Póllandi í gær og nótt að sögn yfirvalda. Þar hafa hundrað dáið vegna kuldans það sem af er árinu. Sumir króknað en aðrir dáið úr súrefnisskorti vegna lélegrar kyndingar.
Í Kosovo létust þrír og tvö börn slösuðust þegar gaskútur sprakk. Frostið hefur sums staðar í Evrópu farið í fjörutíu stig og veðurfræðingar segir að ekki hlýni að ráði fyrr en um mánaðamótin. Skólum hefur víða verið lokað og neyðarástandi lýst víða vegna samgönguerfiðleika. Árnar Dóná, Sava og Tisu lagði og höfnum þurfti að loka. Í Serbíu telja menn að fjárhagsskaða vegna kuldans megi meta á hálfan milljarð evra, rúmlega áttatíu milljarðar íslenskrar króna.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Erlent, Veður

Tilkynna um bilaða upptöku