Nítjándi sigur Kiel í röð

Alfreð Gíslason þjálfari Kiel
Lærissveinar Alfreðs Gíslasonar í Kiel unnu sinn nítjánda sigur í jafnmörgum leikjum í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik þegar liðið lagði Hüttenberg 31-20 í dag. Aron Pálmarsson var ekki með Kiel í dag vegna meiðsla.
Kiel er efst í deildinni með fullt hús stiga og hefur sjö stiga forystu á Füchse Berlin sem er í öðru sætinu með 31 stig.
Þá skoraði Rúnar Kárason fjögur mörk fyrir Bergischer sem vann fjögurra marka sigur á Hannover-Burgdorf 35-31 í botnslagnum í gær. Vignir Svavarsson skoraði sjö mörk fyrir Burgdorf í leiknum, Ásgeir Örn Hallgrímsson sex mörk og Hannes Jón Jónsson eitt mark. Burgdorf er í fjórtánda sæti deildarinnar með fjórtán stig en Bergischer er sæti neðar með tólf stig.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






