Niðurfelling forðaði gjaldþroti

Einbýlishúsið Sólvangur í miðbæ Heimaeyjar var byggt 1920. Mynd: Sighvatur Jónsson

Fyrrverandi eigendur einbýlishúss í Eyjum sem var sýkt af veggjatítlum eru ánægðir með að hafa sloppið við gjaldþrot. Íbúðalánasjóður felldi niður lánin og Vestmannaeyjabær leysti húsið til sín til niðurrifs.

Hjón sem áttu húsið þar til bærinn leysti það til sín höfðu búið í því í sex ár. Þau segjast vera ánægð með að hafa ekki þurft að lýsa sig gjaldþrota eins og þau óttuðust á tímabili. Frá því að þau sögðu sögu sína í Kastljósi fyrir tæpu ári hefur Íbúðalánasjóður fellt niður lán og samningar hafa tekist við aðra lánardrottna vegna fyrirhugaðra framkvæmda sem hætta þurfti við. Engar tryggingar ná yfir tjón af þessu tagi. Hjónin hafa tapað eignarhluta sínum í húsinu.

En hvað verður um húsið? Rætt hefur verið um að brenna það til að losna alfarið við veggjatítlurnar. Heilbrigðisnefnd Suðurlands hafði ekki heyrt af niðurrifi hússins þegar fréttastofa leitaði upplýsinga þar í dag. Bent er á að með réttu þurfi Vestmannaeyjabær að leggja málið fyrir nefndina til að óska leyfis til að brenna húsið. Eingöngu sé leyfilegt að brenna varðeld í innan við tvær klukkustundir án sérstakra leyfa.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka