Neyðarlögin felldu Kaupþing
Fyrst birt: 08.03.2012 14:58, Síðast uppfært: 14.03.2012 11:39

Hreiðar Már Sigurðsson í dómsal í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Mynd: Tryggvi Aðalbjörnsson.
Að setja neyðarlögin var það sem felldi Kaupþing, að mati Hreiðars Más Sigurðssonar, forstjóra bankans. Hreiðar Már sagði fyrir landsdómi í dag að staða Kaupþings hefði að mörgu leyti batnað árið 2008.
Hann sagði að bankinn hefði náð í ný innlán frá fjárfestum fyrir 5,7 milljarða evra. Stjórnendur bankans hefðu því talið að þeir hefðu fundið leiðina út úr kreppunni. Þegar neyðarlögin hafi verið sett hafi hins vegar enginn viljað eiga viðskipti við bankann og hann fallið.
Um kaupin á NIBC-bankanum sagði Hreiðar Már að þau hafi verið talin góð fyrir Kaupþing haustið 2007 en versnandi staða á fjármálamarkaði hafi breytt þeirri skoðun og því hafi verið hætt við snemma árs 2008. Það hafi verið sameiginleg ákvörðun JC Flowers og Kaupþings, Seðlabankinn eða Fjármálaeftirlitið hafi ekki orðið til þess.
Hreiðar Már sagði þó að Jónas Fr. Jónsson, þáverandi forstjóri FME, hefði aðstoðað seljanda bankans við að komast að sömu niðurstöðu. Hann hafi gert honum grein fyrir því að ekki væri sjálfgefið að FME samþykkti kaupin.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














