Nemanja til ÍBV



  • Prenta
  • Senda frétt

ÍBV hefur samið við Nemanja Malovic, unga örvhenta skyttu frá Svartfjallalandi, sem spilaði á síðasta tímabili með Haukum og varð bikarmeistari með liðinu.

Handknattleikslið ÍBV, sem spilar í 1. deild og varð á síðasta tímabili í 5. sæti, hefur misst töluvert marga leikmenn og ætti Nemanja því að vera góður fengur.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku