Náttúruperlur í Thor: The Dark World

Flokkar: Innlent, Mannlíf


  • Prenta
  • Senda frétt

Skógafoss, Fjaðrárgljúfur og Dómadalur við Landmannalaugar eru meðal þeirra tökustaða sem notaðir verða í kvikmyndinni Thor: The Dark World. Fjölmennt lið myndarinnar er komið til Íslands en tvö jafnstór tökulið verða að störfum í þá sex daga sem tökurnar standa.

Þá hefur fréttastofa heimildir fyrir því að Skeiðársandur hafi einnig hlotið náð fyrir augum tökuliðsins en hluti þess gistir á Hótel Hrauneyjum.

Þetta kemur fram á kvikmyndavefsíðunni Comicbookmovie.com sem sérhæfir sig í fréttum af svokölluðum myndasögu-kvikmyndum. Marvel-fyrirtækið, sem framleiðir myndina, mun þó eflaust leggja sitt af mörkum til að koma í veg fyrir að einhverju er lekið af tökustöðum því það leggur rmikið uppúr öryggisgæslu í kringum myndir sínar.

Þá eru símamyndir af leikurum myndarinnar þegar farnar að leka á twitter-síður og þannig má meðal annars sjá mynd af leikaranum Tom Hiddleston, sem leikur Loka í myndinni, að versla í fríhöfninni í Leifsstöð. Þá er vitað að leikararnir Chris Hemsworth og Christopher Eccleston eru þegar komnir til landsins.

Hátt í 200 Íslendingar taka þátt í tökunum sem verða meðal þeirra umfagnsmestu á árinu. Það er framleiðslufyrirtækið Truenorth sem þjónustar tökuliðið en það hefur haft á sínum snærum þrjú önnur stór kvikmyndaverkefni frá Hollywood; fyrst Oblivion, þá Noah og loks The Secret Life of Walter Mitty.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku