Náðu samkomulagi um bráðabirgðastjórn
Fyrst birt: 06.02.2012 08:10, Síðast uppfært: 06.02.2012 09:28

Mahmoud Abbas forseti Palestínumanna.
Helstu fylkingar Palestínumanna Hamas og Fatah hafa náð samkomulagi um myndun bráðabirgðastjórnar. Samkomulag er um að Mahmoud Abbas forseti Palestínumanna verði í forsæti stjórnarinnar sem á að undirbúia forseta- og þingkosningar.
Abbas og Khaled Meshaal yfirmaður Hamas hittust í Doha höfuðborg Qatar í gær til þess að ákveða framkvæmd friðarsamkomulags sem náðist milli fylkinganna í fyrra.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






