Nadal í úrslit - Federer úr leik
Fyrst birt: 26.01.2012 14:10, Síðast uppfært: 26.01.2012 14:10

Rafael Nadal leikur til úrslita á Opna ástralska mótinu í tennis
Spánverjinn Rafael Nadal tryggði sér sæti í úrslitum í karlaflokki á Opna ástralska meistarmótinu í tennis í dag. Nadal, sem situr í þriðja sæti heimslistans, vann Svisslendinginn Roger Federer, næstefsta mann listans, í fjórum settum 6-7, 6-2, 7-6 og 6-4 í undanúrslitum.
Í úrslitum mætir Nadal annað hvort Serbanum Novak Djokovic, sem er efstur á heimslistanum, eða Bretanum Andy Murray en sá er í fjórða sæti heimslistans.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






