Myrti unnustann á brúðkaupsdeginum
Fyrst birt: 13.08.2012 01:24, Síðast uppfært: 13.08.2012 15:30
Flokkar: Erlent

31 árs kona í Hokendauqua í Pennsylvaníu er í haldi lögreglunnar í bænum, grunuð um að hafa banað unnusta sínum með hnífi á laugardag, örfáum mínútum áður en prestur átti að gefa þau saman.
Hjónaleysin voru í óða önn að undirbúa brúðkaupið í íbúð sinni í fjölbýlishúsi þegar þeim varð sundurorða, rifrildið varð æ ákafara uns konan, Cola Darcel Franklin, lagði til unnustans með hnífi. Þegar lögreglan kom á vettvang lá Billy Rafael Brewster, 36 ára, í blóði sínu, hann lést svo á sjúkrahúsi.
Sjónarvottar segja prestinn hafa mætt á vettvang skömmu síðar og þá fyrst frétt af þessum voðaatburði. Þá hafi brúðkaupsgesti drifið að síðdegis, en þeir gripið í tómt.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














