Mursi segist verða leiðtogi allra Egypta

Mohammed Mursi, nýr forseti Egyptalands, ávarpar landsmenn nokkrum klukkustundum eftir að úrslit kosninga voru ljós. Mynd: AFP/NILE TV.
Íslamistinn Mohamed Mursi, sem var útnefndur nýr forseti Egyptlands á sunnudag, segist ætla að verða leiðtogi allra Egypta. Nokkrum klukkustundum eftir að hann var útnefndur kallaði Mursi eftir einingu meðal Egypta, eftir kosningabaráttu sem hefur skipt landsmönnum í fylkingar.
Mursi sagði að eina leið eygpsku þjóðarinnar frá erfiðleikum væri að sameinast. Hann þakkaði sigurinn píslarvottum uppreisnarinnar í landinu og undirstrikaði að byltingin héldi áfram. Hann sagði að farið yrði að öllum alþjóðasamningum og boðaði frið.
Ban Ki-Moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, sagði eftir að ljóst varð að Mursi yrði næsti forseti Egyptalands, að kosningin væri einungis eitt skref í átt til lýðræðis í landinu og styrkja þyrfti stofnanir samfélagsins og byggja þær upp til að tryggja sjálfstæði þeirra.
Mohammed Mursi er fyrsti forseti Egyptalands frá því Hosni Mubarak var hrakinn frá völdum í febrúar í fyrra, eftir tæplega 30 ár í embætti.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














