Mundu eftir mér sigurvegari

Lagið Mundu eftir mér verður framlag Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í Aserbaídsjan í maí. Lagið, sem er eftir Gretu Salóme Stefánsdóttur, varð hlutskarpast eftir harða úrslitakeppni í Eldborgarsal Hörpu.

Greta Salóme flutti lagið sjálf ásamt Jóni Jósepi Snæbjörnssyni og fríðum flokki bakraddasöngvara, þeim Pétri Erni Guðmundssyni, Gísla Magna, Guðrúnu Árnýju Karlsdóttur og Ölmu Rut Kristjánsdóttur.

Lagið Stattu upp hafnaði í öðru sæti.

Sjö lög kepptu til úrslita og var sigurvegari valinn eftir símakosningu almennings og mat dómnefndar.

Mundu eftir mér keppir 22. maí i undankeppni Eurovision. Aðalkeppnin fer fram 26. maí í Baku í Aserbaídsjan.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Menning

Tilkynna um bilaða upptöku