Mótmæli í Grikklandi

Mótmælendur vörpuðu grjóti og bensínsprengjum að lögreglu sem svaraði með táragasi. Mynd:AFP
Til átaka kom milli lögreglu og mótmælenda í Aþenu í dag. Mótmælendur köstu grjóti og bensínsprengjum að lögreglu sem svaraði með táragasi. Almenningur mótmælir kröfu lánveitenda að Grikkir skeri meira niður til að fá frekari lán.
Tveggja sólarhringa allsherjarverkfall hófst í dag til að mótmæla niðurskurðaráformum stjórnvalda. Samkomulag tókst í gær með grískum stjórnmálamönnum um viðbótarniðurskurð, sem er skilyrði Evrópusambandsins, Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Seðlabanka Evrópu fyrir frekari aðstoð. Hún er nauðsynleg því að öðrum kosti geta Grikkir ekki greitt af skuldum sínum. Það dugði þó ekki fjármálaráðherrum evruríkjanna sem settu enn frekari skilyrði.
Niðurskurðaráætlunin verður borin upp til atkvæða í gríska þinginu á sunnudag. Laos flokkurinn, sem er lengst til hægi á þinginu, tilkynnti í dag að hann ætlaði ekki að styðja frekari niðurskurð. Flokkurinn hefur 15 sæti af 300 á þinginu í Aþenu. Fjórir ráðherrar flokksins buðust til að segja af sér í dag. Fleiri ráðherrar hafa sagt af sér til að mótmæla niðurskurðaráætluninni, en engu að síður er búist við að hún verði samþykkt.
Reiðina í Grikklandi má merkja á því að samtök grískra lögreglumanna hótuðu því í dag að handtaka æðstu embættismenn samtaka evruríkja og Alþjóðgjaldeyrissjóðsins. Segja þeir að embættismennirnir vinni að því í leyni að eyðileggja lýðræðið og fullveldi Grikkja. Einn þeirra sem lögreglumennirnir hóta að handtaka er Poul M. Thomsen, sem er yfirmaður sendinefndar AGS. Thomsen gegndi sama hlutverki á Íslandi fyrst eftir hrunið 2008.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






