Tjáningarfrelsið í hættu

Árni Grétar Jóhannsson, framkvæmdastjóri Samtakanna 78

Íslensk stjórnvöld lýsa áhyggjum af þróun mála í St. Pétursborg í Rússlandi þar sem greiða á atkvæði um lög sem skerða verulega tjáningarfrelsi fólks. Framkvæmdastjóri Samtakanna 78 segir slík lög hafa verið samþykkt í tveimur héruðum. Þar sé þegar búið að handtaka fólk sem tjái sig um samkynhneigð.

Mannréttindasamtök hafa miklar áhyggjur af því að lögin, sem skerða réttindi samkynhneigðra, verði samþykkt í St Pétursborg en málið verður tekið fyrir þar í dag. Verði lögin samþykkt er hætt við að tjáningarfrelsi milljóna manna verði verulega skert. Hvatt hefur verið til þess að stuðningsmenn réttinda samkynhneigðra um allan heim hafi samband við utanríkisráðuneyti landa sinna og biðji ráðamenn um að beita sér í málinu. Utanríkisráðuneytið hér heima fékk talsvert af áskorunum í gær og brást við, eins og Kristján Guy Burgess, aðstoðarmaður utanríkisráðherra sagði í Morgunútvarpinu í morgun. Kristján sagði að ráðuneytið hefði lýst áhyggjum af þróun mála við sendiráð Rússlands hér, strax í gær.  Árni Grétar Jóhannsson, framkvæmdastjóri Samtakanna 78 var líka í þættinum en mannréttindasamtök víða um heim hafa varað við þessu frá því að umræðan hófst í Rússlandi. Nú er búið að samþykkja lögin í tveimur héruðum í Rússlandi, segir Árni Grétar, og þar er farið að framfylgja lögunum og hefur fólk sem brýtur lögin verið handtekið og sektað. Samkvæmt lögunum er öll umræða um samkynhneigða bönnuð.  Árni Grétar segir að verði þau samþykkt í St. Pétursborg sé líklegt að borgaryfirvöld í Moskvu samþykki slík lög næst. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku