Svona er að vera Íslendingur
Fyrst birt: 08.02.2012 10:17, Síðast uppfært: 08.02.2012 10:30

Hvað er að vera Íslendingur? Er það sá sem borðar hákarl? Sá sem borðar ótrúlega mikið lambakjöt? Sá sem á íslenska foreldra eða sá sem hefur íslenskan ríkisborgararétt.
Þessu velta nemendur í tíunda bekk grunnskólanna fyrir sér. Berglind Häsler heimsótti Austurbæjarskóla í gær og komst að því að þetta er verkefni fær unga fólkið til að skoða stöðu sína í heiminum í nýju ljósi. Kennari þeirra, Harpa Rut Hilmarsdóttir, segir að í fyrstu virðist spurningin einföld en við nánari skoðun komi annað í ljós.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






