Störf stjórnvalda til skammar
Fyrst birt: 03.02.2012 10:22, Síðast uppfært: 03.02.2012 10:47

Almennar verðhækkanir og sérstaklega síhækkandi verð á eldsneyti er það sem fólkið á götunni, sem Morgunútvarpið ræddi við, gagnrýnir ríkisstjórnina helst fyrir.
Kona á miðjum aldri segist eiga orðið erfitt með að ná endum saman. Ungur maður segir að miðað við það stjórnmálakerfi sem ríkisstjórnin vinni eftir vinni hún í raun ágæta vinnu. Eldri borgari segist í upphafi hafa bundið vonir við ríkistjórnina ,,þær vonir eru nú steindauðar," segir hann. Hann segir ellilífeyrinn fara þverrandi, alltaf sé verið að klípa af honum. Hann segist oft hugsa til þeirra sem hafa það verr en hann og kona hans, þetta sé til skammar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






