Pólitísk popp-slagsíða

Tónlistarmenn í Bandaríkjunum eru mishrifnir af því að frambjóðendur Repúblikanaflokksins noti lögin þeirra á fundum eða í auglýsingum. Við ræddum um popp og pólitík við Einar Örn Benediktsson, stjórnmálamann og poppara, og Andrés Jónsson ráðgjafa.
Hljómsveitin Survivor samdi lagið Eye of The Tiger árið 1982 en hefur nú bannað bæði Mitt Romney og Newt Gingrich að nota það á kosningafundum. Það er einkum sveitatónlist sem hægri menn mega nota í Bandaríkjunum en demókratar virðast ekki glíma við sama vandamál. Bill Clinton notaði til dæmis lag hljómsveitarinnar Fleetwood Mac með góðum árangri.
Hvorki Andrés né Einar mundu eftir dæmum um það að íslenskum stjórnmálaflokkum hefði verið bannað að nota ákveðin dægurlög. Þeir sögðu hins vegar að auðvitað gætu verið dæmi um að það hefði gerst. Þeir rifjuðu upp nokkur dæmi um það hvernig tónlist hefur verið notuð í pólitík, meðal annars þegar pönkhljómsveitin Crass var stofnuð sérstaklega til höfuðs Margrétar Thatchers.
Andrés talaði svo um forsetakosningarnar sem fara fram á Íslandi í sumar. Hann sagði að það yrði skemmtilegt ef frambjóðendur myndu velja sér sína eigin tónlist og nota hana til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Þeir gætu jafnvel tekið upp á því að syngja sjálfir. Einar benti hins vegar á að stundum væri frekar pínlegt að fylgjast með fjöldasöng á flokkssamkomum og líklega ættu menn að passa upp á það að slökkva á myndavélum og upptökutækjum áður en hann hæfist.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






