Ormar, stríð og múrmeldýr

Lag Týs, Ormurinn langi, er gamall færeyskur dans færður í nútíma búning með hardrock ívafi. Kvæðið er byggt á frásögn Heimskringlu þar sem segir frá dauða Ólafs Tryggvasonar, Noregskonungs. Bogi Ágústsson talaði um lagið og fleira í Morgunútvarpinu í morgun.
Ólafur féll í orrustunni við eyju í Eystrasalti, sem Snorri Sturluson kallar Svoldur, en ekki er vitað hvar er. Þar segir meðal annars frá bogaskyttunni miklu, Einari þambarskelfi, sem var í liði Ólafs Tryggvasonar og varðist af mikilli fimi um borð í skipi konungs, Orminum langa. En þar kom að boginn brast og konungur spurði þá hvað hefði brostið. Einar svaraði að Noregur hefði brostið úr hendi konungs. Þetta hljómar svo á færeysku:
Svaraði Einar Tambarskelvir
kastar boga sín
Nú brast Noregi úr tínum hondum
kongurin harri mín.
Sá hluti danskvæðisins sem Týr syngur í sínu lagi er einungis lítill hluti alls dansins.
Bogi fjallaði einnig um Falklandseyjastríðið en þrjátíu ár eru liðin frá deilu Breta og Argentínumanna. Hún hefur hins vegar blossað upp á nýjan leik og málin komin í vissan hnút. Frægasta múrmeldýr í heimi spáir hörðum vetri og Bretar fórnuðu stjórnmálum fyrir fótbolta í gær þegar Harry Redknapp var sýknaður af ákærum um skattsvik.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






