Óhreinir latexhanskar í sjoppum

Sumar vegasjoppur á Íslandi eru svo skítugar að Gísli Einarsson kaupir aldrei neitt þar nema því sé örugglega pakkað inn annars staðar. Hann ræddi um hreinlæti, sýkla og latexhanska í Morgunútvarpinu og dró ekkert undan. Gísli er ekki par hrifinn af hönskunum sem hann segir skapa falskt öryggi.

Mörg dæmi er um að fólk setji á sig latexhanska, handleiki mat, taki við kreditkorti og klóri sér í pungnum, eins og Gísli orðaði það. Hann hefur meira að segja séð fólk reykja með hanskana á sér áður en það fer aftur í afgreiðsluna. Síðan hefst hringrásin á nýjan leik og latexhanskarnir fara skítugir og hárugir í matinn. Hann sagðist þó vera svo kurteis að hann færi aldrei á bakvið til þess að kvarta heldur fengi hann útrás í Morgunútvarpinu.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku