Mary krónprinsessa fertug

Rúmlega 10 ár eru síðan danska þjóðin heyrði fyrst minnst á unga ástralska konu, Mary Donaldson. Þá höfðu danskir fjölmiðlar komist á snoðir um samband hennar og Friðriks krónprins og nú fór í gang mikil rannsóknarblaðamennska.

Í tilefni fertugsafmæli Mary hefur mikið verið fjallað um hana í dönskum fjölmiðlum. Almenningur og álitsgjafar eru spurðir spjörunum úr: Hvernig er hjónabandið? Hvernig hefur henni gengið að aðlagast hlutverkinu? Hvað með klæðnaðinn? Er hann tipp topp? Hvernig er dönskukunnáttan? Og svo framvegis og svo framvegis. Í vikulegum pistli segir Borgþór Arngrímsson í Kaupmannahöfn frá krónprinsessunni Mary.

 


 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku