KSÍ þarf að móta skýrari stefnu

Morgunútvarpið hélt áfram að tala um fordóma gegn samkynhneigðum í fótbolta en mikið hefur verið fjallað um það í Bretlandi síðustu daga. Engin stefna er hjá KSÍ í málefnum samkynhneigðra knattspyrnumanna sagði og við ræddum þessi mál við framkvæmdastjóra KSÍ.

Steindór Sigurjónsson er eini íslenski knattspyrnumaðurinn sem komið hefur út úr skápnum og haldið áfram að keppa. Steindór segir að bæði vanti stuðning og jafnvel námsskeið fyrir þá sem eigi erfitt. Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ viðurkenndi þetta en sagði að menn þyrftu að skilgreina vandamálið.

Hann sagði jafnframt að honum hefði þótt forvitnilegt að heyra af aðgerum breska knattspyrnusambandsins og þeim rannsóknum sem eru að fara í gang hjá þeim. Hann sagði að KSÍ myndi fylgjast vel þessum málum og í framhaldinu skoða hvort grípa ætti til svipaðra aðgerða hérlendis.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku