Kópavogslistinn hafnaði Gunnari

Rannveig Ásgeirsdóttir

Nýr meirihluti tekur til starfa í næstu viku. Hart hefur verið deilt á Kópavogslistann sem talaði mikið um siðbót fyrir síðustu kosningar. Rannveig Ásgeirsdóttir, oddviti listans, ræddi meðal annars um siðbót, fjármál og Gunnar I. Birgisson í Morgunútvarpinu.

Kópavogslistinn vildi lagði áherslu á það í meirihlutaviðræðum við sjálfstæðisflokk og framsóknarflokk að oddvitar flokkanna tækju sæti í bæjarráði. Þetta var meðal annars vegna þess að Gunnar I. Birgisson sætir nú ákæru vegna málefna lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar. Rannveig sagði að hún væri alls ekki mótfallin því að vinna með Gunnari en hins vegar ætti hann ekki að vera í framvarðarsveit meirihlutans.

Fjárhagsstaða Kópavogs er afar slæm og nema heildarskuldir bæjarins rúmum tvö hundruð% sem hlutfall af árstekjum. Ármann Kr. Ólafsson, verðandi bæjarstjóri í Kópavogi, sagði í gær að lækka ætti skatta og gjöld í fréttum sjónvarpsins í gær. Rannveig sagði að í nýjum málefnasamningi væri lögð áhersla á ábyrga fjármálastjórn en að skoða ætti lækkun fasteignagjalds. Hins vegar yrðu ekki miklar breytingar á starfsemi bæjarins enda komið fram á mitt kjörtímabil. Málefnasamningurinn tæki mið af því.

Varðandi siðbót í stjórnmálum sagði Rannveig að hún næði til ýmissa þátta, ekki bara ópólitísks bæjarstjóra. Listinn hefði ekki náð öllum markmiðum sínum enda lítill flokkur með aðeins einn bæjarfulltrúa. Aðspurð sagði hún að Kópavogslistinn hefði engu að síður staðið fyrir ákveðinni viðbót.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku