Hvað merkir orðið ellinaðra?

Guðmundur Steingrímsson og Sólveig Arnarsdóttir

Sýningin Orð skulu standa í Þjóðleikhúskjallaranum byggir á gömlum útvarpsþáttum en þar velta stjórnendur og gestir fyrir sér merkingu íslenskra orða. Liðsstjórar sýningarinnar voru gestir Morgunútvarpsins og veltu meðal annars fyrir sér merkingu orðsins ellinaðra.

Á fimmtudagskvöldum tekur  alþingismaður og formaður Bjartrar framtíðar af sér pólitíska hattinn og ræðir um íslenskt mál. Guðmundur tók við liðsstjóra hlutverkinu af Davíð Þór Jónssyni en Sólveig Arnarsdóttir leiðinu. Stjórnandi er Karl Th. Birgisson og um tónlist sér Eurovision-farinn Pálmi Sigurhjartarson.

Guðmundur sagði að það væri talsverður munur á því að vera í útvarpsþætti eða uppi á sviði. Til að mynda hefði hann aldrei vitað hvort hann væri að segja eitthvað fyndið í útvarpinu því enginn hefði hlegið. Í leikhúsinu veltist fólk hins vegar úr hlátri. Sólveig benti á að oft væri salurinn löngu búinn að finna lausnina áður en liðin tvö væru búin að því. Þá væri ekkert annað að gera en að fá aðstoð úr sal. Þar að auki væru nokkrar spurningar til áhorfenda sem þeir fengju að spreyta sig á.

Hvorki Guðmundi né Sólveigu tókst að giska á rétta merkingu orðsins ellinaðra. Orðið kemur úr Slangurorðabókinni og þar má finna eftirfarandi skýringu:

 

Rafskutla fyrir gamalt fólk eða þá sem eiga erfitt með gang
Dæmi: Sjáðu gamla manninn á ellinöðrunni!

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku